Fjöll
Til Baka

Verið er að leggja lokahönd á stálþil við nótahótel Egersund á Eskifirði

Nú er verið að leggja lokahönd á framkvæmdir við stálþilskant framan við nótahótel Egersund á Eskifirði.  Um er að ræða 35 m viðlegukant og er dýpi við hann 10 metrar.  Hófust framkvæmdir við kantinn haustið 2008 og var lokið við gerð kants og þekju í september sl.  Þessa dagana er unnið við að koma rafmagni í kantinn.  Heildarkostnaður við framkvæmdina með dýpkun var um 95 millj. kr.  Samhliða framkvæmdum við kantinn vann Egersund ísland að stækkun húsæðis hjá sér sem stórbætir alla möguleika á veiðarfæraþjónustu við skip og báta, sem og geymslu á trollum og nótum.

Til Baka
| Meira
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Sími 470-9000.  Bréfasími 470-9001.
Kennitala 470698-2179. -  Netfang www.fjardabyggd.is