Nýja varðskipi
ð Þór kom við á Reyðarfirði í morgun og var gestum og gangandi boðið að skoða skipið. Skipið er allt mjög glæsilegt og gaman að fá að skoða það. Helstu verkefni varðskipsins er löggæslu- og landamæraeftirlit, björgunaraðgerðir, auðlindagæsla, leitar- og björgunaraðgeðir, fiskveiðieftirlit og stjórnstöð í neyðaraðgerðum.
Varðskipið getur m.a. dælt eldsneyti í þyrlur á flugi, dælt upp olíu sem lendir í sjónum og það er mjög vel búið dráttarbúnaði og hefur alla eiginleika dráttarskips. Þá er skipið sérstaklega styrkt fyrir siglingu í ís og getur skaffað rafmagn í land.
Nánari upplýsingar um V/S Þór eru á
www.lhg.is