Tveir nýir bátar voru að bætast í flota Eskfirðinga nú á dögunum. Annar báturinn er nýr björgunarbátur sem tekinn var í notkun á dögunum. Báturinn kom til landsins um leið bátarnir á Norðfirði og Fáskrúðsfirði og sagt var frá á heimasíðu Fjarðabyggðar í maí, en hefur verið í endurbótameðferð.
Nýi björgunarbáturinn ber nafnið Alfreð Guðnason. Hinn báturinn er nýr línubátur í eigu Eskju hf og ber hann nafnið Hafdís SU-220. Um er að ræða 30 brúttórúmlesta stálbát sem smíðaður er í Hafnarfirði árið 1999 og hét áður Hafdís GK-118 og var frá Grindavík. Fjarðabyggð óskar nýjum eigendum til hamingju.