Hólmaháls borði
Til Baka

Sjókajakmótið Egill Rauði verður haldið um helgina

 
 
 

Sjókajakmótið Egill Rauði verður haldið um hvítasunnuhelgina, föstudag til mánudags dagana 21. - 24. maí.   Mótið er nú haldið í fjórða sinn á Austurlandi en mótið var áður haldið í Stykkishólmi og þar áður á Barðaströnd og ber alltaf nafn landnámsmanna þeirra staða þar sem mótið er. Í ár segja fróðir menn að mótið sé haldið í tíunda sinn. Fólk kemur að víðsvegar að af landinu og einnig erlendis frá en gert er út frá félagsaðstöðu Kaj í Kirkjufjörunni á Norðfirði. 


Landhelgisgæslan tekur þátt í mótinu með þyrlubjörgunaræfingu  sem verður væntanlega fyrir hádegi á laugardeginum. Á mótinu geta byrjendur og lengra komnir geta sótt námskeið hjá bandarískum leiðbeinendum þeim Dan Henderson og Dubside.  Þá verður  sundlaugarnámskeið, námskeið á sjó og fyrirlestrar á kvöldin og á sunnudeginum verður keppt í sprettróðri, kajakveltum og reipafimi.

Dagskrá mótsins og allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu Kajakklúbbsins Kaj:   www.123.is/kaj 

-

Til Baka
| Meira
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Sími 470-9000.  Bréfasími 470-9001.
Kennitala 470698-2179. -  Netfang www.fjardabyggd.is