Fjallabanner
Til Baka

Peningalykt í Neskaupstað

 

Frétt af RÚV 28.1.12:  Útgefinn loðnukvóti er rúmlega tvöfalt meiri en í fyrra.Vertíðin skilar þjóðarbúinu líklega næstum 30 milljörðum. Það er viðbúið að peningalykt leggi frá verksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað eins og öðrum loðnubræðslum landsins. Þegar okkur ber að garði er verið að landa úr Bjarna Ólafssyni. Íslensk skip fá að veiða rúma hálfan milljón tonna af loðnu, meira entvöfalt það sem veitt var á síðasta fiskveiðiári.

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar: Það má segja að aukningin fari meira og minna í mjöl og lýsi. En þetta er náttúrulega gríðarleg lyftistöng fyrir þessa staði sem byggja á uppsjávarvinnslu og fólk mun hafa mikið að gera næsta einn og hálfan mánuðinn við að koma þessu í verðmæti.

Rúnar Snær Reynisson: Þessi mikli kvóti, hvað þýðir hann fyrir ykkur fólkið hérna í vinnslunni?

Guðjón Helgi Þorsteinsson, verkstjóri: Hann þýðir náttúrulega að við höfum meiri vinnu og meiri tekjur. Þannig að það er bara bjart framundan hjá okkur. Við erum ellefu á vaktinni og þetta er svona að stórum hluta orðið bara sjálfvirkur vélbúnaður sem að þarf bara að fylgjast með og grípa inn í annað slagið.

Og aukinn kvóti þýðir auknar tekjur til hafnarinnar.

Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð: Við höfum reiknað út svona gróflega að þetta séu á bilinu 60 til 80 milljónir sem að, sem þetta þýðir í auknar tekjur fyrir sveitarfélagið.

Allt veltur þetta á því að það takist að veiða kvótann áður en loðnan hrygnir og drepst. En kvótinn var gefinn út óvenju seint.

Gunnþór Ingvason: Það hafa ekki allir verið á fullum snúningi í janúar en ef að veðurguðirnir og ytri aðstæður verða okkur hagstæðar og veiðar ganga vel að þá mun kvótinn nást.


Til Baka
| Meira
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Sími 470-9000.  Bréfasími 470-9001.
Kennitala 470698-2179. -  Netfang www.fjardabyggd.is