Til Baka
Mikið um að vera við höfnina á Norðfirði
Norðfjarðarhöfn hefur verið iðandi af lífi á árinu og mikið verið um landanir og útskipanir afurða þar. Þó ró sé nú að byrja að færast yfir hafnir landsins þegar jólahátíðin nálgast er ekki alveg komið að þeim tímapunkti á Norðfirði, sem er ein af stærstu fiskihöfnum landsins. Háberg landaði síld í gær og hélt að aflokinni löndun heim í jólafrí. Á sama tíma var verið að skipa út 1600 tonnum af mjöli í Írafoss frá Síldarvinnslunni. Þá er Barði að koma heim að nýju úr slipp, en verið var að gera við skemmdir sem urðu á honum eftir að eldur kom upp í honum síðsumars.
Til Baka