Loðnuvertíðin gengur vel hjá stóru fiskvinnslufyrirtækjunum í Fjarðabyggð og gjaldeyririnn streymir inn. Hjá Síldarvinnslunni, Loðnuvinnslunni og Eskju vinna um 350 manns þessa dagana í landvinnslu og á sjó og hefur rúmum 76 þúsund tonnum af loðnu verið landað í Fjarðabyggð á þessari vertíð.
Loðnuvertíðin er nýbyrjuð hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði og frysting byrjaði í þessari viku. Hoffellið er með kvóta upp á 5.600 tonn en er búið að landa 3.300 tonnum. Auk þess hafa færeysku skipin Júpíter og Finnur Fríði landað 5.000 tonnum. Starfsmönnum Loðnuvinnslunnar fjölgar um tuttugu og fimm á vertíðinni og nú eru hundrað sextíu og fimm manns í vinnu þar. Kjartan Reynisson hjá Loðnuvinnslunni segir að loðnuvertíðin sé kapphlaup við tímann því um leið og loðnan hrygni dreifi hún sér og er þá ekki lengur veiðanleg.
Benedikt Jóhannsson hjá Eskju á Eskifirði sagði að Aðalsteinn Jónsson væri búinn að landa 8.900 tonnum af loðnu og Jón Kjartansson 14.000 tonnum. Auk þess hafa erlend skip landað um 5.000 tonnum hjá Eskju. Starfsmenn Eskju eru áttatíu.
Jóna Már Jónsson hjá Síldarvinnslunni segir að alls hafi verið landað 40.000 tonnum af loðnu í Neskaupstað á þessari vertíð. Þar landa skip Síldarvinnslunnar Beitir og Börkur, frystiskipin Hákon og Vilhelm, grænlenska skipið Erica og Bjarni Ólafsson frá Akranesi.
Skip Síldarvinnslunnar Beitir og Börkur landa á Norðfirði, Seyðisfirði og í Helguvík og hafa landað 21.000 tonnum hvort. Jón Már gerir ráð fyrir að kvóti Síldarvinnslunnar klárist 10. – 15. mars en um 5 þúsund tonn eru eftir af kvótanum hjá þeim. Hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað starfa 70 manns í landvinnslu og 36 sjómenn.
Myndin var fengin að láni á www.eskja.is er tekin í höfninni á Eskifirði