Til Baka
Hoffell landar gulldeplu á Fáskrúðsfirði
Fyrsti farmur þessa árs af gulldeplu barst til Fáskrúðsfjarðar í gærkvöldi þegar Hoffell landaði þar 715 tonnum. Hoffell hefur aðallega landað gulldeplunni í Vestmannaeyjum enda miðin fyrir sunnan land og styst að fara þangað til löndunar. Ákveðið var að fara í heimahöfn að þessu sinni þar sem bræla var framundan á svæðinu. Hoffell heldur að nýju til gulldepluveiða á miðnætti í kvöld.
Til Baka