Fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað í Neskaupstað í gær. Mörg ár eru síðan loðnu hefur verið landað svo snemma.
Það var fallegt vetrarveður í Neskaupstað eldsmenna í gær þegar Börkur NK lagðist að bryggju. Úr skipinu hefur í allan dag steymt fyrsta loðan sem landað er á þessari vertíð en hún fannst norður af Kolbeinsey.
Loðnuveiðin hefst óvenju snemma á þessari vertíð en það eru sex ár síðan loðnu var síðast landað í Neskaupstað fyrir áramót. Loðnan er sögð falleg og er um fjórðungur aflans frystur til manneldis en afgangurinn fer í mjöl og lýsi. Fleiri skip hafa leitað að loðnu síðustu daga og er Ingunn AK væntanleg til Vopnafjarðar á miðnætti með um 600 tonn. Áætlað er að loðnuvertíðin skili um 7 milljörðum í þjóðarbúið. Markaðir fyrir loðnu til manneldis eru hinsvegar ekki góðir um þessar mundir.
frettir@ruv.is