Til Baka
Fyrsta loðnan barst til Norðfjarðar
Fyrstu loðnunni, sem berst til Norðfjarðar á þessu ári, var landað í morgun þegar Vilhelm Þorsteinsson kom með um 170 tonn af frosinni loðnu til löndunar.
Börkur kom síðasta túrinn í bili af síldarmiðunum í gær sunnudag og er nú verið að undirbúa skipið fyrir loðnuveiðar. Nú eru skipin í óða önn að undirbúa sig fyrir loðnuvertíð, en gefinn hefur verið út 130 þúsund tonna upphafskvóti og komu 90 þúsund tonn í hlut Íslendinga af honum.
-
Til Baka