Snemma í morgun kom dráttarbáturinn Stadt Valiant frá Noregi til Fáskrúðsfjarðar. Verkefnið dráttarbágsins er að draga flutningaskipið Ölmu til Akureyrar þar sem gert verður við skipið.
Alma hefur legið á Fáskrúðsfirði síðan 6. nóvember sl. eftir að hafa verið dregin þangað frá Hornafirði þar sem skipið tapaði stýrinu í vonsku veðri. Gert er ráð fyrir að skipin leggi af stað á morgunn en leiðinda veður er á siglingaleiðinni eins og er.