Holtasóley
Til Baka

Endurnýjun lífdaga í útgerð smábáta

Mikið hefur verið um að vera í höfninni á Stöðvarfirði á árinu.  Búið er að landa þar 3.126 tonnum það sem af er árinu skv. upplýsingum á vef Fiskistofu samanborið við 1.616 tonn allt árið 2008.  Það sem fyrst og fremst hefur breyst milli ára er tilkoma strandveiða og má því segja að með tilkomu þeirra hafi höfnin á Stöðvarfirði blómstrað á ný.  Þessari auknu umferð smábáta um höfnina fylgdi líka að þröng myndaðist við viðlegur og er hafnarstjórn nú að skoða hvort ekki verði unnt að fjölga viðleguplássum í höfninni á nýju ári.


Til Baka
| Meira
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Sími 470-9000.  Bréfasími 470-9001.
Kennitala 470698-2179. -  Netfang www.fjardabyggd.is