Tólf tonna fiskibátur, sem strandaði í sunnanverðum Stöðvarfirði laust eftir miðnætti, náðist ekki á flot í nótt. Reynt verður aftur að losa bátinn á flóði um hádegisbil
Fjórir menn voru um borð í bátnum en þá sakaði ekki. Báturinn er skorðaður í grjót og þegar skipverjar kölluðu eftir aðstoð sögðust þeir geta stokkið í land, því var aldrei alvarleg hætta á ferðum.
Báturinn situr hins vegar sem fastast. Fiskibáturinn Von kom fyrstur á strandstað en skömmu síðar kom björgunarbáturinn Hafdís frá Fáskrúðsfirði á vettvang. Taug var komið í bátinn og reynt að koma honum á flot en án árangurs og því var ákveðið að bíða flóðs á hádegi. Björgunarskip og björgunarbátar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru á strandstað til eftirlits en aðstæður á vettvangi eru með besta móti, veður er gott, ekkert amar að skipverjunum en þrír þeirra voru fluttir á land í nótt.