
Frétt af RÚV 28.1: Útgefinn loðnukvóti er rúmlega tvöfalt meiri en í fyrra.Vertíðin skilar þjóðarbúinu líklega næstum 30 milljörðum.

Loðnuvertíðin hefur gengið vel frá áramótum

Snemma í morgun kom dráttarbáturinn Stadt Valiant frá Noregi til Fáskrúðsfjarðar.

Frétt af RÚV: Tólf tonna fiskibátur, sem strandaði í sunnanverðum Stöðvarfirði laust eftir miðnætti, náðist ekki á flot í nótt.

Nýja varðskipið Þór kom við á Reyðarfirði í morgun og var gestum og gangandi boðið að skoða skipið.

Olíuflutningaskipið Sten Frigg liggur nú við bryggju á Reyðarfirði og gnæfir yfir höfnina eldrautt og glæsilegt. Það kom til Reyðarfjarðar frá Norðfirði í morgun. Skipið siglir undir fána Gíbraltar en er smíðað í Kína árið 2009. Það er 11.935 tonn, 144 metra langt og 23 metrar á breidd.

Úr Fréttablaðinu: Fjarðabyggð hefur tekið fram úr Garðabæ sem tekjuhæst stærri sveitarfélaga miðað við íbúafjölda. Fljótsdalshreppur með 69 íbúa er hins vegar tekju hæstur meðal smærri sveitarfélaga. Tekjur hreppsins á íbúa nema 1,4 milljónum króna.

Loðnuvertíðin gengur vel hjá stóru fiskvinnslufyrirtækjunum í Fjarðabyggð og gjaldeyririnn streymir inn. Hjá Síldarvinnslunni, Loðnuvinnslunni og Eskju vinna um 350 manns þessa dagana í landvinnslu og á sjó og hefur rúmum 76 þúsund tonnum af loðnu verið landað í Fjarðabyggð á þessari vertíð.

Fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað í Neskaupstað í gær. Mörg ár eru síðan loðnu hefur verið landað svo snemma.
Fjarðabyggðarhafnir taka þátt sýningunni Flutningar 2010 sem haldin er á Grand Hótel Reykjavík í dag og á morgun 7. og 8. október. Sýningin er opin frá kl. 12:00 - 18:00.

Tveir nýir bátar voru að bætast í flota Eskfirðinga nú á dögunum. Annar báturinn er nýr björgunarbátur sem tekinn var í notkun á dögunum. Báturinn kom til landsins um leið bátarnir á Norðfirði og Fáskrúðsfirði og sagt var frá á heimasíðu Fjarðabyggðar í maí, en hefur verið í endurbótameðferð.

Fyrsta síld vorsins barst til Norðfjarðar um helgina þegar Bjarni Ólafsson AK-70 og Vilhelm Þorsteinsson EA-11 komu til hafnar, Bjarni með um 500 tonn og Vilhelm með um 1000 tonn af norsk-íslenskri síld.

Sjókajakmótið Egill Rauði verður haldið um hvítasunnuhelgina, föstudag til mánudags dagana 21. - 24. maí. Mótið er nú haldið í fjórða sinn á Austurlandi en mótið var áður haldið í Stykkishólmi og þar áður á Barðaströnd og ber alltaf nafn landnámsmanna þeirra staða þar sem mótið er. Í ár segja fróðir menn að mótið sé haldið í tíunda sinn.

Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur keypt togarann Margréti EA-710 af Samherja hf. Margrét EA hefur stundað veiðar undan ströndum Afríku en er væntanlegt heim um hvítasunnu og hefur veiðar fyrir Síldarvinnsluna fyrir mánaðarmót á norsk-íslenskri síld og makríl.

Björgunarsveitir á Austurlandi eru í óða önn að búa sig undir aukna smábátaútgerð sem fylgir strandveiðunum. Í því skyni hafa tveir harðbotna björgunarbátar verið fluttir inn til landsins frá Bretlandi, fyrstu sinnar tegundar hér á landi og eru fleiri slíkir bátar væntanlegir.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta í Fjarðabyggð. Annars vegar er auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2008/2009 fyrir Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð og hins vegar er auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2009/2010 fyrir Mjóafjörð og Stöðvarfjörð.
Togarinn Mars frá Brim lagði að Eskifjarðarhöfn með bilaðan gír í lok febrúar og eru starfsmenn Vélsmiðjunnar Hamars að vinna að viðgerð á honum.

Aðalsteinn Jónsson SU-11 landaði 541 tonni af frosnum kolmuna á föstudaginn var og tók loðnunótina á laugardag og fór á loðnuveiðar á sunnudagskvöld. Eskja fékk 8000 tonna loðnukvóta að þessu sinni.

Fyrstu loðnunni, sem berst til Norðfjarðar á þessu ári, var landað í morgun þegar Vilhelm Þorsteinsson kom með um 170 tonn af frosinni loðnu til löndunar. Börkur kom síðasta túrinn í bili af síldarmiðunum í gær sunnudag og er nú verið að undirbúa skipið fyrir loðnuveiðar.

Fyrsti farmur þessa árs af gulldeplu barst til Fáskrúðsfjarðar í gærkvöldi þegar Hoffell landaði þar 715 tonnum. Hoffell hefur aðallega landað gulldeplunni í Vestmannaeyjum enda miðin fyrir sunnan land og styst að fara þangað til löndunar. Ákveðið var að

Fjarðabyggðarhafnir senda viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum innilegar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu.

Nú er verið að leggja lokahönd á framkvæmdir við stálþilskant framan við nótahótel Egersund á Eskifirði. Um er að ræða 35 m viðlegukant og er dýpi við hann 10 metrar. Hófust framkvæmdir við kantinn haustið 2008 og var lokið við gerð kants og þekju í september sl.
Mikið hefur verið um að vera í höfninni á Stöðvarfirði á árinu. Búið er að landa þar 3.126 tonnum það sem af er árinu skv. upplýsingum á vef Fiskistofu samanborið við 1.616 tonn allt árið 2008. Það sem fyrst og fremst hefur breyst milli ára er tilkoma strandveiða og má því segja að með tilkomu þeirra hafi höfnin á Stöðvarfirði blómstrað á ný.

Norðfjarðarhöfn hefur verið iðandi af lífi á árinu og mikið verið um landanir og útskipanir afurða þar. Þó ró sé nú að byrja að færast yfir hafnir landsins þegar jólahátíðin nálgast er ekki alveg komið að þeim tímapunkti á Norðfirði, sem er ein af stærstu fiskihöfnum landsins. Háberg landaði síld í gær og hélt að aflokinni löndun heim í jólafrí.

Í dag var haldinn í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði 4. hafnarfundur Hafnasambands Íslands. Á fundinn mættu hátt í 60 fulltrúar frá öllum landshlutum. Að loknum fundinum var farið með fulltrúana í Kynnisferð um Fjarðabyggð en dagurinn endar með móttöku í Randúlfssjóbúð á Eskifirði.