Hafnsögumaður er til taks allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Öll skip lengri en 100 m, að undanteknum innlendum fiskiskipum, og öll skip sem flytja hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæði.
Tilkynning um komu til hafnar og ósk um lóðsþjónustu skal berast með sólarhrings (24 tíma) fyrirvara í vaktsíma viðkomandi hafnar.
Reyðarfjarðarhöfn 474-1305
Norðfjarðarhöfn 477-1333
Eskifjarðarhöfn 476-1199
Sé um lóðsskylt skip að ræða eða að óskað hefur verið eftir lóðsþjónustu skal, auk þess sem að framan getur, láta hafnsögumann vita tveim tímum (2 tímum) fyrir komu í lóðspunkt í síma 860-4538.
Hafnsögumaður kemur um borð í skip:
Reyðarfirði - Mjóeyrarhöfn 65°01,6N 13°55W
Reyðarfirði 65°01,6N 14°01,2W
Eskifirði 65°02,2N 13°55W
Norðfirði 65°09'N 13°37'W
Fáskrúðsfirði 64°54,9N 13°54,8W
Stöðvarfirði Í samráði við hafnsögumann
Mjóifjörður Í samráði við hafnsögumann
Gjald fyrir þjónustu hafnarinnar er að finna í gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.